Framkonur með deildabikarinn

Framkonur fagna sigrinum.
Framkonur fagna sigrinum. mbl.is/Styrmir Kári

Fram vann Stjörnuna í úrslitaleiknum í deildabikar kvenna í handknattleik í dag eins og áður hefur komið fram. 

Hér eru Framkonur með bikarinn eftir leikinn. Þær unnu hann í þriðja sinn en áður hafði félagið sigrað í keppninni árin 2010 og 2013. Stjarnan vann hinsvegar 2014 en þessi keppni telst vera fyrir árið 2015 þó henni ljúki fyrir áramót.

Valur hefur unnið keppnina fjórum sinnum og Stjarnan þrisvar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert