Arna Sif Pálsdóttir og stöllur hennar í SK Arhus fóru illa að ráði sínu þegar þær mættu Ringköping í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.
Gestirnir frá Ringköbing tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörk leiksins en lokatölur urðu, 28:27.
Arna Sif stóð fyrir sínu en línumaðurinn sterki skoraði 5 mörk. SK Arhus er í áttunda sæti deildarinnar af 12 liðum með tólf stig.