Þórey markahæst í tapleik

Þórey Rósa Stefánsdóttir.
Þórey Rósa Stefánsdóttir. mbl.is/Kristinn

Þórey Rósa Stefánsdóttir, landsliðskona í handknattleik, var markahæst í liði Vipers Kristiansand í kvöld þegar það tók á móti Glassverket í norsku úrvalsdeildinni.

Þórey skoraði 5 mörk en þau dugðu ekki til því lið hennar beið lægri hlut, 19:27, í mikilvægum leik í toppbaráttunni. Vipers er í fjórða sætinu en Glassverket er í öðru sæti og nú skilja sjö stig liðin að.

Hildigunnur Einarsdóttir skoraði eitt mark fyrir Tertnes sem vann Nordstrand á útivelli, 28:22, en Unnur Ómarsdóttir náði ekki að skora fyrir Skrim Kongsberg sem burstaði Stabæk, 38:26. Tertnes er í fimmta sæti og Skrim í sjötta sæti af tólf liðum í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert