Topplið Gróttu marði Hamrana

Þórir Jökull Finnborgason og félagar í Gróttu sóttu tvö stig …
Þórir Jökull Finnborgason og félagar í Gróttu sóttu tvö stig til Akureyrar. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Topplið Gróttu í 1. deild karla í handknattleik lenti í kröppum dansi þegar liðið heimsótti Hamrana norðan heiða í dag. Þegar yfir lauk munaði einungis einu marki á liðunum, lokatölur 22:21.

Grótta var með þriggja marka forystu í hálfleik, 14:11, en leikar jöfnuðust á ný eftir hlé og að lokum var eitt mark sem skildi á milli. Grótta er enn í toppsæti 1. deildar með 29 stig og á enn eftir að tapa leik, en Hamrarnir eru í sjötta sæti með fimmtán stig.

Mörk Gróttu: Aron Dagur Pálsson 4, Þráinn Orri Jónsson 4, Kristján Þór Karlsson 3, Aron Valur Jóhannsson 3, Þorgeir Bjarki Davíðsson 3, Júlíus Þórir Stefánsson 2, Aron Benedikt Árnason 2, Þórir Jökull Finnbogason 1.
Mörk Hamrana: Kristján Már Sigurbjörnsson 5, Birkir Guðlaugsson 5, Jón Heiðar Sigurðsson 3, Almar Blær Bjarnason 3, Arnór Þorri Þorsteinsson 2, Aðalsteinn Halldórsson 1, Patrekur Stefánsson 1, Valdimar Þengilsson 1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert