Dröfn hætt hjá ÍBV

Dröfn Haraldsdóttir er að leita sér að nýju liði.
Dröfn Haraldsdóttir er að leita sér að nýju liði. mbl.is/Golli

„Já, það er rétt, ég er hætt hjá ÍBV og spila ekki meira með liðinu,“ sagði Dröfn Haraldsdóttir handknattleiksmarkvörður þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hennar í gær. „Ég er hins vegar ekki hætt í handbolta en framtíðin í vetur er enn óljós, hvort ég fari í eitthvert annað félag eða ekki,“ sagði Dröfn, sem hefur leikið níu A-landsleiki fyrir Ísland.

„Hún óskaði eftir því að hætta hjá okkur og því fengum við Ólöfu Kolbrúnu Ragnarsdóttur til liðs við okkur til að breikka og styrkja markvarðahópinn okkar,“ sagði Jón Gunnlaugur Viggósson, þjálfari meistaraflokks ÍBV, í gær.

„Dröfn hefur ekki náð að finna sig almennilega hjá okkur, en ég vona bara að hún sé ekki hætt í handbolta og finni sér eitthvert lið þar sem hún finnur sig betur,“ bætti hann við. skuli@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert