Handknattleiksmaðurinn Daníel Örn Einarsson gekk í dag til liðs við 1. deildarlið Víkings sem er í harðri baráttu um sæti í efstu deild.
Daníel lék síðast með Akureyringum og spilaði alla leiki þeirra í Olís-deildinni fyrir áramótin. Hann er örvhentur hornamaður og getur líka leikið sem skytta. Daníel sem er 26 ára gamall hefur einnig leikið með Stjörnunni og HK. Hann lék á seinasta leiktímabil með KR og skoraði 79 mörk í 17 leikjum. Í tilkynningu frá Víkingum segir að Daníel muni hefja æfingar með liðinu á morgun.