Fylkir náði stigi gegn toppliðinu

Anna Úrsúla Guðmundsdóttir skoraði 5 mörk fyrir Gróttu.
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir skoraði 5 mörk fyrir Gróttu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Óvænt úrslit urðu í Olís-deild kvenna í handknattleik nú seinni partinn þegar Fylkir gerði jafntefli við topplið Gróttu, 20:20, á heimavelli sínum í Árbæ.

Patrícia Szölösi og Thea Imani Sturludóttir skoruðu 6 mörk hvor fyrir Fylki en hjá Gróttu var Anna Úrsúla Guðmundsdóttir markahæst með 5 mörk og Karólína Bæhrenz Lárusdóttir skoraði 4.

Grótta trónir í toppsætinu með 27 stig, Fram hefur 26 og Stjarnan er í þriðja sætinu með 24. Fylkir er í 7. sætinu með 13 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert