Fór aðeins um mann undir lokin

„Við bjuggumst við erfiðum leik og það var það sem þetta var. Þetta var líka bara skemmtilegt fyrir áhorfendur að hafa smá spennu í lokin,“ sagði Laufey Ásta Guðmundsdóttir leikmaður Gróttu eftir sigurinn á ÍBV í kvöld í undanúrslitum  bikarkeppni kvenna í handknattleik í Laugardalshöllinni.

„Við vorum komnar í ágætis mál á timabili, en vissum að Eyjamenn gefast aldrei upp þannig að vð urðum að halda einbeitingu. Það fór aðeins um mann þarna undir lokin, en við náðum að landa þessu, sem betur fer,“ sagði Laufey Ásta en viðtalið í heild má sjá á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert