Karekter í Eyjamönnum

„Við gerðum okkur þetta kannski full erfitt fyrir, en við vissum að þetta yrði erfiður leikur og þó við væum komin með fína stöðu í seinni hálfleik vissum við að það er mikill karekter í Eyjamönnum, því þær eru ólseigar,“ sagði Kári Garðarsson, þjáflari Gróttu eftir sigurinn á ÍBV í kvöld.

„Sem betur fer sýndu mínar stelpur líka karekter í lokin og við náðum að landa sigri. Íris varði nokkra bolta þarna í lokin og það hafði mikið að segja fyrir okkur,“ sagði Kári og viðurkenndi að vörninhafi ekki verið eins og hún hefur verið í vetur. „Vonandi finnum við vörnina fyrir úrslitaleikinn og ef sóknin verður eins og í þessum leik þá verður þetta gaman,“ sagði þjálfarinn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert