Elvar ekki með Valsmönnum í kvöld

Elvar Friðriksson verður ekki með í kvöld eins og vonast …
Elvar Friðriksson verður ekki með í kvöld eins og vonast var til. Eva Björk Ægisdóttir

Valsmenn munu leika án Elvars Friðrikssonar í undanúrslitaleik bikarkeppni karla í handknattleik í kvöld, en liðið mætir þá FH í Laugardalshöll.

Elvar hefur verið frá vegna nárameiðsla og misst af síðustu tveimur leikjum Vals vegna þeirra, en vonir stóðu til að hann yrði orðinn leikfær fyrir helgina. Óvíst er hvort hann verði leikfær í úrslitaleiknum á morgun ef þeir komast þangað.

„Það er alveg séns að maður myndi láta alla skynsemi út um gluggann og mæta til leiks í úrslitaleikinn. Við verðum bara að sjá á morgun hvort að Valsliðið er í úrslitaleiknum og hvort að ég láti hjartað stýra för frekar en höfuðið,“ sagði Elvar við vef Rúv.

Hins vegar er Guðmundur Hólmar Helgason á skýrslu hjá Val í kvöld, en hann hefur misst af síðustu leikjum vegna höfuðmeiðsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert