„Höfum unnið vel að þessu“

Ágúst fagnar sætinu í bikarúrslitaleiknum.
Ágúst fagnar sætinu í bikarúrslitaleiknum. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Ágúst Elí Björgvinsson, hrökk í gang í marki FH, þegar mest lá við í tvíframlengda undanúrslitaleiknum gegn Val í Laugardalshöllinni í kvöld. 

FH var í erfiðri stöðu þegar langt var liðið á venjulegan leiktíma en vann upp fjögurra marka forskot Vals á síðustu átta mínútunum.

„Svona hefur þetta verið hjá okkur í vetur. Loksins tókst okkur að klára dæmið í leik þar sem við erum að elta og það skilaði sætum sigri. Við höfum unnið vel að þessu og í þessum leik kvittuðum við fyrir alla ósigrana í vetur. Við vildum ekki tapa fleiri mikilvægum leikjum og eigum örugglega eftir að taka út góða frammistöðu í fleiri leikjum,“ sagði Ágúst við mbl.is þegar sigurinn var í höfn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert