„Þetta er kannski svipað og í fimmta leik á Ásvöllum í vor. Karakterinn í þessum drengjum er alveg hreint ótrúlegur," sagði Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV, eftir að lið hans vann Hauka, 23:21, og tryggði sér sæti í úrslitum Coca Cola bikarsins í handknattleik karla í Laugardalshöll í kvöld.
„Við gefumst aldrei upp," sagði Gunnar. „Það hafði sitt að segja að við breyttum vörninni og fengum ferska menn inn þegar á leið síðari hálfleikinn," sagði Gunnar.
Gunnar segir að nú þegar ÍBV er komið í úrslit þá reiknar hann með a.m.k. þúsund áhorfendum frá Eyjum á úrslitaleikinn í Laugardalshöllinni klukkan 16 á morgun.
„Við ætlum okkur alla leið enda vilja allir þeir hafa reynt það að koma með bikar til Eyja endurtaka þann leik."
Nánar er rætt við Gunnar Magnússon, þjálfara ÍBV, á meðfylgjandi myndskeiði.