Arnar Sigurjónsson og Svavar Ólafur Pétursson dæma úrslitaleik Coca Cola-bikars kvenna á milli Vals og Gróttu en flautað verður til leiks í Laugardalhöllinni klukkan 13.30.
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson halda síðan uppi röð og reglu á úrslitaleik Coca Cola-bikars karla klukkan 16 en þá leiða ÍBV og FH saman hesta, einnig í Laugardalshöll. Anton og Jónas dæmdu einnig undanúrslitaleik ÍBV og Gróttu í kvennaflokki á fimmtudagskvöldið.
Arnar og Svavar hafa ekkert dæmt leiki fyrr á þessari úrslitahelgi Handknattleikssambandsins í Laugardalshöll.