Gerist ekki betra

„Þetta hefur verið frábært, það gerist ekki betra en þetta,“ sagði Theodór Sigurbjörnsson, leikmaður ÍBV og nýkrýndur bikarmeistari,  í samtali við mbl.is eftir að ÍBV varð bikarmeistari í handbolta karla í kvöld eftir eins marks sigur á FH, 23:22, í Laugardalshöllinni í kvöld.

„Maður er aldrei saddur. Deildin er eftir og við viljum vinna meistaratitilinn aftur,“ sagði Theodór og bætti við. „Við vorum klaufar að vera ekki löngu búnir að gera út um leikinn. FH-ingar nýttu sér það þannig að úr varð hörkuleikur í lokin. Þetta var bara spennandi leikur tveggja góðra liða,“ sagði Theodór.

Nánar er rætt við Theodór Sigurbjörnsson á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert