Grótta fagnaði á Eiðistorgi

Lovísa Thompson og Elín Jóna Þorsteinsdóttir voru að vonum kátar …
Lovísa Thompson og Elín Jóna Þorsteinsdóttir voru að vonum kátar með sigurinn. mbl.is/Árni Sæberg

Leikmenn og stuðningsmenn kvennaliðs Gróttu í handknattleik fagnaði bikarmeistaratitlinum í handknattleik á Eiðistorgi í dag enda full ástæða til þar sem þetta er í fyrsta sinn sem félagið verður bikarmeistari kvenna í handknattleik.

Sigur Gróttu á Val var sannfærandi enda tók Grótta frumkvæðið strax í upphafi og leit aldrei til baka. Lokatölur 29:14 og langþráður titill í höfn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert