Löwen lagði Evrópumeistarana

Alexander Petersson.
Alexander Petersson. mbl.is/Golli

Rhein-Neckar Löwen komst í dag upp að hlið Kiel í toppsæti þýsku 1. deildarinnar í handknattleik með því að leggja Evrópumeistara Flensburg að velli, 23:20.

Alexander Petersson skoraði tvö mörk fyrir Löwen en Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað. Uwe Gensheimer var markahæstur í liðinu með 6 mörk. Hjá Flensburg var Bogdan Radivojevic atkvæðamestur með 7 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert