Bikarmeistararnir hylltir í Eyjum (myndband)

Leikmenn ÍBV fagna sigrinum gegn FH í gær.
Leikmenn ÍBV fagna sigrinum gegn FH í gær. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Það var mikið um dýrðir á Básaskersbryggjunni í Vestmannaeyjum í gærkvöld þegar nýkrýndir bikarmeistarar ÍBV komu til Eyja með Herjólfi.

Fjölmargir stuðningsmenn ÍBV komu með liðinu til Eyja á ellefta tímanum í gærkvöld og á Básaskersbryggjunni tók fjöldi fólks á móti bikarmeisturunum og hylltu þá en ÍBV vann sinn annan bikarmeistaratitil í Laugardalshöllinni í gærkvöld eftir sigur á FH í úrslitaleik.

Á myndbandinu hér að neðan sem Trausti Hjaltason birtir á facebook síðu sinni má stuðið og stemninguna í Eyjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert