Birna Berg atkvæðamikil

Birna Berg Haraldsdóttir.
Birna Berg Haraldsdóttir. mbl.is/Kristinn

Landsliðskonan Birna Berg Haraldsdóttir var atkvæðamikil þegar Molde lagði Fana á útivelli í norsku B-deildinni í handknattleik í gær, 28:21.

Birna Berg var markahæst í liði Molde með átta mörk en Einar Jónsson er þjálfari liðsins sem er í öðru sæti deildarinnar, fimm stigum á undan liðinu sem er í þriðja sæti.

Birna var lánuð til norska liðsins í byrjun ársins frá sænska liðinu Sävehof og gildir lánssamningurinn út keppnistímabilið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert