Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson leikmaður Bergischer er í liði vikunnar hjá handboltatímaritinu Handball Woche.
Björgvin Páll átti flottan leik á milli stanganna þegar Bergischer og Göppingen skildu jöfn, 28:28, í þýsku deildinni um síðustu helgi en Björgvin kom inná snemma leiks og varði jafnt og þétt til leiksloka.