Feginn að þessu er lokið

„Hreint út sagt var þetta lélegur leikur og við vorum heppnir að vinna," sagði Jón Heiðar Gunnarsson, leikmaður ÍR, eftir þriggja marka sigur á botnliði HK, 31:28, á heimavelli í Olís-deild karla í handknattleik í Austurbergi í kvöld.

„Ég er fyrst og fremst feginn að leiknum er lokið," sagði Jón Heiðar ennfremur. „Við glopruðum unnum leik nærri því niður í jafntefli. Ég veit að jafnir leikir eru spennandi fyrir áhorfendur en við megum ekki gera svona leik eftir leik," sagði Jón Heiðar.

Nánar er rætt við Jón Heiðar á meðfylgjandi myndskeiði en hann skartar myndalegri mottu í tilefni mottumars en hefur ekki enn hafið söfnun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert