Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari FH-inga í handknattleik er á leikskýrslu í kvöld fyrir leik liðsins gegn Haukum í Olís-deild karla í handknattleik, ekki aðeins sem þjálfari heldur einnig sem leikmaður og að sögn viðstaddra hitar hann þar upp af fullum krafti.
Halldór Jóhann lagði skóna á hilluna eftir leiktímabilið 2011-2012 en hann spilaði þá með Fram og tók eftir tímabilið við kvennaliði liðsins. Þar var hann í tvö ár áður en hann tók við FH-liðinu.