„Getum spilað þó einhverja vanti“

Varnarleikur Vals var mjög traustvekjandi þegar liðið vann ÍR 25:20 í Olís-deildinni í handbolta í Austurberginu í kvöld. 

Orri Freyr Gíslason lék i hjarta varnarinnar ásamt Kára Kristjánssyni megnið af leiknum. Orri var sáttur við vörnina þegar mbl.is ræddi við hann. 

„Við vorum mjög sterkir varnarlega og það kom í ljós að það var mjög gott því við vorum ekki góðir sóknarlega í dag,“ sagði Orri meðal annars en viðtalið við hann er að finna í meðfylgjandi myndskeiði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert