Rúnar Kárason skoraði 4 mörk fyrir Hannover-Burgdorf í þýsku 1. deildinni í handbolta í kvöld en það dugði skammt því liðið tapaði fyrir Minden á útivelli 31:22.
Rúnar var næstmarkahæstur hjá Burgdorf en Ólafur Guðmundsson skoraði eitt mark fyrir liðið.
Sænski leikstjórnandinn Dalibor Doder var í miklu stuði hjá Minden og skoraði 9 mörk og ekkert þeirra af vítalínunni en Doer er orðinn 36 ára gamall.
Hannover-Burgdorf er í 11. sæti en Minden í 13. sæti.