Árni Þór markahæstur í stórsigri

Árni Þór Sigtryggsson var markahæstur í dag undir stjórn bróður …
Árni Þór Sigtryggsson var markahæstur í dag undir stjórn bróður síns, Rúnars Sigtryggssonar. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Íslendingaliðið Aue átti ekki í vandræðum með lið Rostock sem kom í heimsókn í þýsku 2. deildinni í handknattleik í dag. Aue, undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar, vann öruggan sigur 38:27.

Árni Þór Sigtryggsson var markahæstur í liði Aue með átta mörk, en liðið var þremur mörkum yfir í hálfleik, 17:14. Bjarki Már Gunnarsson, Sigtryggur Daði Rúnarsson og Hörður Fannar Sigþórsson skoruðu tvö mörk hver, auk þess sem Sveinbjörn Pétursson stóð vaktina í markinu.

Aue er í níunda sæti deildarinnar með sextán stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert