Lærisveinar Kristjáns Andréssonar í sænska handknattleiksliðinu Guif töpuðu fyrir Lugi HF á útivelli, 26:22, í dag. Atli Ævar Ingólfsson skoraði fimm mörk fyrir Guif og var valinn besti maður liðsins en lét einnig vel finna sér í vörninni.
Atli Ævar skoraði einnig fimm mörk í síðasta leik þegar Guif kjöldró Skövde, 33:18.
Aron Rafn Eðvarðsson stóð vaktina í rammanum hjá Guif, sem var 13:11 undir í hálfleik. Guif er nú í fjórða sæti deildarinnar með 33 stig.