Klein úr leik næstu mánuðina

Dominik Klein í leik með þýska landsliðinu.
Dominik Klein í leik með þýska landsliðinu. AFP

Þýski landsliðsmaðurinn Dominik Klein sem leikur með þýsku meisturunum í Kiel varð fyrir því óláni að slíta krossband í leik gegn Erlangen í gær. Þetta kom í ljós þegar hann fór í myndatöku í morgun.

Klein, sem er 31 árs gamall hornamaður, verður frá æfingum og keppni næstu 7-8 mánuðina en þessi snjalli hornamaður hefur verið í herbúðum Kiel frá árinu 2006. Þá hefur hann verið fastamaður í þýska landsliðinu mörg undanfarin ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert