„Þetta er framför frá síðustu tveimur leikjum og við erum ánægðir með það,“ sagði Elías Már Halldórsson við mbl.is í kvöld en hann skoraði 7 mörk í sigri Hauka á Fram í Safamýri í kvöld.
Elías sagðist vera nokkuð bjartsýnn á að Haukar væru á góðu róli nú korteri fyrir úrslitakeppnina og sagði þá leggja áherslu á að koma vel stemmdir inn í hana þrátt fyrir að tímabilið hafi á margan hátt verið Haukum erfitt.