Halldór Stefán áfram í Árbænum

Halldór Stefán Haraldsson t.h. ásamt Kjartani Gylfasyni formanni handknattleiksdeildar Fylkis.
Halldór Stefán Haraldsson t.h. ásamt Kjartani Gylfasyni formanni handknattleiksdeildar Fylkis. Ljósmynd/Fylkir

Halldór Stefán Haraldsson hefur framlengt samning sinn við Handknattleiksdeild Fylkis um þjálfun meistaraflokks kvenna  til tveggja ára.  Hann hefur stýrt Fylkisliðinu síðustu þrjú árin með stigbatnandi árangri. 

Fylkir hafnaði í 11. sæti vorið 2013, níunda sæti árið eftir og er nú í sjöunda sæti Olís-deildarinnar fyrir lokaumferðina sem fram fer í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert