ÍBV náði heimaleikjarétti

Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði fimm mörk fyrir Fram í kvöld í …
Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði fimm mörk fyrir Fram í kvöld í öruggum sigri á Haukum, 30:19. Fram hafnaði í öðru sæti deildarinnar. Árni Sæberg

ÍBV tryggði sér fjórða sætið í Olís-deild kvenna með því að leggja deildarmeistara Gróttu, 20:18, í lokaumferðinni sem fram fór í kvöld. ÍBV fékk 28 stig í í 22 leikjum, jafnmörg stig og Haukar en stendur betur að vígi í innbyrðisleikjum liðanna. ÍBV vann sér þar með inn heimaleikjarétt í fyrstu umferð úrslitakeppni Olís-deildarinnar sem hefst á mánudaginn.

Þar mætast einmitt ÍBV og Haukar. Deildarmeistarar Hauka leika við Selfoss, Fram og Fylkir eigast við og Stjarnan og Valur en þau lið léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn á síðasta voru. Valur hefur Íslandsmeistaratitil að verja. 

Úrslit leikja kvöldsins í Olís-deild kvenna:

Grótta - ÍBV 18:20
Mörk Gróttu: Laufey Ásta Guðmundsdóttir 5, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 3, Karólína Bæhrenz Lárudóttir 3, Lovísa Thompson 3, Eva Björk Davíðsdóttir 2, Guðný Hjaltadóttir 2.
Mörk ÍBV: Vera Lopez 8, Díana Dögg Magnúsdóttir 4, Ester Óskarsdóttir 4, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 2, Drífa Þorvaldsdóttir 1, Elína Anna Baldursdóttir 1.

Stjarnan - HK 32:20
Mörk Stjörnunnar: Hanna Guðrún Stefánsdóttir 7, Arna Björk Almarsdóttir 5, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 5, Sólveig Lára Kjærnested 4, Þórhildur Gunnarsdóttir 4, Sandra Sif Sigurjónsdóttir 3, Helena Rut Örvarsdóttir 2, Alina Tamasan 1, Nataly Sæunn Valencia 1.
Mörk HK: Emma Havin Sardarsdóttir 5, Gerður Arinbjarnar 5, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 3, Þórhildur Braga Þórðardóttir 3, Natalia María Helen Ægisdóttir 1, Sigríður Hauksdóttir 1, Eva Hrund Harðardóttir 1, Sóley Ívarsdóttir 1. 

Fylkir - FH 27:20

Mörk Fylkis: Patricia Szölösi 8, Thea Imani Sturludóttir 7, Hildur Björnsdóttir 4, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 3, Sigrún Birna Arnardóttir 2, Vera Pálsdóttir 1, Diljá Mjöll Aronsdóttir 1, Rebekka Friðriksdóttir 1. 
Mörk FH: Aníta Mjöll Ægisdóttir 7, Heiðdís Rún Guðmundsdóttir 3, Ingibjörg Pálmadóttir 3, Rakel Sigurðardóttir 3, Sara Kristjánsdóttir 2, Steinunn Snorradóttir 1, Ásrún Lilja Birgisdóttir 1.

Fram - Haukar 30:19
Mörk Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 5, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 4, María Karlsdóttir 4, Steinunn Björnsdóttir 4, Elísabet Gunnarsdóttir 3, Marthe Sördal 3, Hafdís Shizuka Iura 2, Hekla Rún Ámundadóttir 2, Ásta Birna Gunnarsdóttir 2, Elva Þóra Arnardóttir 1. 
Mörk Hauka: Karen Dögg Díönudóttir 8, Gunnhildur Pétursdóttir 3, Ragnheiður Sveinsdóttir 2, Ásta Björk Agnarsdóttir 2, Ragnheiður Ragnarsdóttir 2, Anna Lillian Þrastardóttir 1, Marija Gedroit 1.

Valur - Selfoss 30:19
Mörk Vals: Kristín Guðmundsdóttir 8, Íris Ásta Pétursdóttir Viborg 6, Vigdís Þorsteinsdóttir 3, Sigurlaug Rúnarsdóttir 3, Alexandra  Birkisdóttir 3, Ragnhildur Hjartardóttir 3, Kristín Bu 2, Aðalheiður Hreinsdóttir 1, Sólveig Lóa Höskuldsdóttir 1. 
Mörk Selfoss: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 9, Kristrún Steinþórsdóttir 2, Thelma Sif Kristjánsdóttir 2, Harpa Sólveig Brynjarsdóttir 2, Hulda Dís Þrastardóttir 1, Helga Rún Einarsdóttir 1, Heiða Björk Eiríksdóttir 1, Carmen Palamariu 1.

ÍR - KA/Þór 20:22
Mörk ÍR: Petra Waage 8, Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 4, Jóhanna Björk Viktorsdóttir 4, Brynhildur Kjartansdóttir 2, Auður Margrét Pálsdóttir 1, Karen Tinna Demian 1. 
Mörk KA/Þórs: Birta Sveinsdóttir 9, Arna Einarsdóttir 4, Ásdís Guðmundsdóttir 3, Paula Chirila 2, Steinunn Guðjónsdóttir 2, Arna Erlingsdóttir 1, Laufey Höskuldsdóttir 1. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert