Ætla að klára þetta í tveimur leikjum

Jón Gunnlaugur fer yfir málin með Eyjakonum.
Jón Gunnlaugur fer yfir málin með Eyjakonum. Kristinn Ingvarsson

„Ég er mjög ánægður með sigurinn í dag,“ sagði Jón Gunnlaugur Viggósson, þjálfari ÍBV, eftir að lið hans hafi unnið Hauka 30:24 í fyrsta leik 8-liða úrslitanna um Íslandsmeistaratitilinn.

„Við gerðum bara það sem þurfti. Við vorum ekkert að gefa neitt aukalega í þetta en við munum þurfa að gefa þetta aukalega í leikinn ef við ætlum að klára þetta einvígi á útivelli.“ 

Ester Óskarsdóttir fór á kostum í liði ÍBV en hún skoraði þrettán mörk. „Ég er mjög ánægður með Ester í leiknum, hún skorar þrettán mörk og Erla Rós var mjög góð í seinni hálfleik. Það vantaði mikið upp á markvörsluna í fyrri hálfleik.“

Ef Eyjakonur sigra á Ásvöllum á miðvikudaginn eru þær komnar í undanúrslit. Hvernig ætlarðu að leggja leikinn upp? „Með því að sigra. Við ætlum að gefa allt í þetta og ætlum okkur að klára þetta í tveimur leikjum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert