Handknattleiksdómararnir Arnar Sigurjónsson og Svavar Pétursson eru á leið til Katar en þeir voru valdir af Alþjóðahandknattleikssambandinu, IHF, til að dæma á meistaramótinu í Katar.
Mótið fer fram dagana 16.-28. apríl en á þessu sama móti spilaði Ólafur Stefánsson fyrir tveimur árum.