Árni Bragi Eyjólfsson hornamaðurinn ungi í liði Aftureldingar var að vonum ánægður með sigur sinna manna gegn ÍR-ingum í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla í handknattleik í kvöld.
„Við vorum með áttunda manninn með okkur í stúkunni. Við elskum að spila fyrir framan þetta fólk,“ sagði Árni Bragi við mbl.is en Afturelding hrósaði sigri, 23:20, og skoraði Árni tvö mörk í leiknum.
„Við brosum í kvöld en síðan hefst undirbúningur fyrir næsta leik. Það sem gerði gæfumuninn að við unnum var vörn, markvarsla og hraðaupphlaupin,“ sagði Árni Bragi en allt viðtalið við hann má sjá í spilaranum.