Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í spænska liðinu Barcelona komust í undanúrslit Meistaradeildar Evrópumeð með stórsigri liðsins á Zagreb 43:21 en gestirnir sáu aldrei til sólar og áttu ekki möguleika.
Barcelona hafði þrettán marka forystu í hálfleik 23:10.
Fyrri leikur liðanna í Króatíu fór 25:23 og því var búist við spennandi leik en Barcelona-liðið sýndi heldur betur mátt sinn og megin í kvöld.
Guðjón Valur skoraði fimm mörk í leiknum og var hvíldur undir lokin enda sigurinn löngu tryggður.