Þrettán mörk frá Bjarka

Bjarki Már Elísson.
Bjarki Már Elísson. Ljósmynd/thsv-eisenach.de

Bjarki Már Elísson fór hamförum í kvöld þegar lið hans, Eisenach, sigraði Coburg, 36:32, í þýsku 2. deildinni í handknattleik.

Bjarki skoraði eina ferðina enn á annan tug marka fyrir lið sitt í vetur en þau  voru þrettán að þessu sinni, þar af sjö úr vítaköstum. Hannes Jón Jónsson lék líka með Eisenach en skoraði ekki.

Eisenach er áfram í fjórða sæti í geysiharðri baráttu um þrjú sæti í efstu deild. Leipzig er með 52 stig á toppnum en Bittenfeld er með 47 stig, Rimpar 47, Eisenach 46 og Nordhorn 43 stig þegar fimm umferðum er ólokið.

Bjarki hefur sem kunnugt er samið við Füchse Berlín til næstu ára og Hannes Jón gerist þjálfari West Wien í Austurríki að þessu tímabili loknu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert