Átta mörk Arnórs ekki nóg

Arnór Þór Gunnarsson.
Arnór Þór Gunnarsson. mbl.is/Golli

Arnór Þór Gunnarsson, landsliðsmaður í handknattleik, skoraði 8 mörk í gærkvöld fyrir lið sitt, Bergischer, þegar það sótti heim lið N-Lübbecke í þýsku 1. deildinni.

Það dugði þó ekki til því N-Lübbecke vann leikinn, 34:31. Björgvin Páll Gústavsson var skamma stund í marki Bergischer að þessu sinni og varði tvö skot. Bergischer er í 14. sæti með 26 stig, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti þegar liðið á fjórum leikjum ólokið.

Magdeburg, undir stjórn Geirs Sveinssonar, vann öruggan útisigur á Friesenheim, 32:24. Magdeburg er í fjórða sæti með 44 stig en fyrir ofan eru Kiel með 55, Rhein-Neckar Löwen með 53 og Flensburg með 46 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert