Gunnar Magnússon, þjálfari Íslandsmeistara Hauka, var hæstánægður með sína menn í kvöld eins og gefur að skilja en Haukar völtuðu yfir ÍR 38:23 í Olís-deildinni.
„Ég er hrikalega ánægður með strákana. Frábær leikur og þeir komu virkilega grimmir
í þennan leik,“ sagði Gunnar meðal annars við mbl.is en nánar er rætt við Gunnar í meðfylgjandi myndskeiði og þar reifar hann aðeins hvað hrjáir Jón Þorbjörn og Elías Már sem ekki eru leikfærir.