Haukar mæta franska liðinu St. Raphael á morgnu í seinni leik liðanna í 3. umferð EHF keppninnar í handknattleik karla. Haukar töpuðu fyrri leiknum með eins marks mun, en sigurmark Arnórs Atlasonar og félaga hans hjá St. Raphael kom í lokasókn leiksins.
Leikmenn Hauka eru í óða önn við að undirbúa sig af kostgæfni fyrir átök morgundagsins og æfðu í dag á leikstaðnum sem er höll sem tekur 2500 manns í sæti.
Leikurinn hefst klukkan 16.00 að íslenskum tíma á morgun.
Myndir af undirbúningi Hauka má sjá í myndasyrpunni hér að ofan.