Landsliðsmarkvörðurinn, Björgvin Páll Gústavsson, var traustur í marki Bergischer þegar liðið gerði jafntefli 21:21 við Stuttgart í þýsku 1. deildinni í handbolta í gærkvöldi.
Björgvin varði fimmtán skot í markinu en Arnór Þór Gunnarsson samherji hans skoraði tvö mörk. Bergischer er í 16. sæti deildarinnar.
Ólafur Bjarki Ragnarsson er kominn á fulla ferð eftir meiðsli og skoraði eitt mark fyrir Eisenach sem tapaði fyrir Gummersbach 32:28 en Eisenach er sæti neðar en Bergischer.