Öruggt hjá Alfreð í Stuttgart

Alfreð Gíslason
Alfreð Gíslason AFP

Alfreð Gíslason fagnaði sigri með liði sínu Kiel í þýska handboltanum í kvöld. Kiel sótti Stuttgart heim og landaði öruggum sigri 35:26.

Þjóðverjinn Christian Sprenger var markahæstur með 8 mörk. Djibril M´Bengue skoraði mest fyrir Stuttgart eða 9 mörk. 

Kiel er í 3. sæti deildarinnar með tólf sigra í fyrstu fimmtán leikjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert