Arnór með þrjú mörk í tapi

Arnór Atlason gerði þrjú mörk í dag.
Arnór Atlason gerði þrjú mörk í dag. Adam Jastrzebowski / Foto Olimpik

Arnór Atlason og félagar hans í St. Raphael í Frakklandi töpuðu fyrir Bjerrinbro/Silkeborg 31:26 í EHF-bikarnum í dag, en leikið var í C-riðli.

Þetta var fyrsti leikur beggja liða í riðlinum en danska liðið leiddi í hálfleik 15:12. Danska liðið tókst að halda forystunni í síðari hálfleiknum og lauk leiknum því 31:26.

Arnór Atlason gerði þrjú mörk fyrir St. Raphael í dag en atkvæðamestir voru þeir Mads Christiansen og Raphael Caucheteux með sjö mörk.

Næsti leikur Arnórs og félaga í EHF-bikarnum er gegn SKA Minsk eftir sex daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert