Öruggur sigur Selfyssinga

Adina Ghidoarca skorar eitt af tíu mörkum sínum gegn Aftureldingu …
Adina Ghidoarca skorar eitt af tíu mörkum sínum gegn Aftureldingu í dag. Ljósmynd / Magnús Matthíasson

Selfoss tók á móti Aftureldingu í 20. umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag. Selfoss steig skref í átt að sæti í úrslitakeppni með öruggum sigri. 

Lokatölur urðu 32:21 Sefoss í vil sem er þar með komið með 20 stig og situr í sjöunda sæti deildarinnar. Afturelding er aftur á móti með þrjú stig á botni deildarinnar. 

Rúmenska skyttan Adina Ghidoarca var markahæst í liði Selfoss með tíu mörk, en Hekla Ingunn Daðadóttir var atkvæðamest í liði gestanna úr Mosfellsbænum með átta mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert