Öruggur sigur Eyjamanna

Magnús Stefánsson og Theodór Sigurbjörnsson fagna einu marka ÍBV í …
Magnús Stefánsson og Theodór Sigurbjörnsson fagna einu marka ÍBV í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Eyjamenn unnu fimm marka sigur á Gróttu, 32:27 í Eyjum í kvöld en um var að ræða fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Olís-deildar karla í handknattleik.

Gróttumenn byrjuðu leikinn betur og komust í 4:1 en þá fóru Eyjamenn í gang og staðan orðin 12:6 eftir 24 mínútur og staðan í hálfleik 16:8.

Í seinni hálfleik var aldrei spurning hvort liðið væri að fara vinna en Eyjamenn gáfu aðeins eftir í restina.

Finnur Ingi Stefánsson og Daði Laxdal Gautason voru langbestir Gróttumanna. Finnur gerði 11 mörk en Daði 7 mörk.

Hjá ÍBV var Theodór Sigurbjörnsson með 11 mörk og Agnar Smári Jónsson 7 mörk.

Næsti leikur liðanna er á sunnudag klukkan 16.00.

ÍBV 32:27 Grótta opna loka
60. mín. Grótta tapar boltanum
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert