Karólína Bæhrenz í ÍBV

Karólína Bæhrenz Lárudóttir er gengin til liðs við ÍBV.
Karólína Bæhrenz Lárudóttir er gengin til liðs við ÍBV. Eggert Jóhannesson

Karólína Bæhrenz Lárudóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV.

Karólína hefur lengi verið meðað fremstu handboltakvenna Íslands. Á síðustu leiktíð lék hún með liðinu Boden Handboll í sænsku B-deildinni í handknattleik, en þar á undan spilaði hún með Gróttu og Val. Hún var markahæsti leikmaður Gróttu þegar liðið varð íslenskur meistari tímabilið 2014-2015. Auk þess hefur hún leikið 21 landsleik fyrir íslenska A-landsliðið.

Hrafnhildur Skúladóttir þjálfari þekkir vel til Karólínu enda þær spiluðu lengi saman með sterku liði Vals.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert