Aron og Alfreð með í sjötta sinn

Aron Pálmarsson hefur sett mikinn svip á keppnina í Meistaradeildinni …
Aron Pálmarsson hefur sett mikinn svip á keppnina í Meistaradeildinni í handbolta og heldur því áfram um helgina. Ljósmynd/Melczer Zsolt

Núverandi keppnisfyrirkomulag, það er að leika undanúslit á laugardegi og úrslitaleiki á sunnudegi, var tekið upp í Meistaradeild Evrópu í handknattleik karla vorið 2010. Áður léku liðin tvö sem komust í úrslit tvo leiki, heima og að heiman, til þess að knýja fram sigurvegara.

Frá 2010 hefur Alfreð Gíslason farið með Kiel í úrslitahelgina í sex skipti af sjö og tvisvar unnið, 2010 og 2012, vann silfur 2014 og hafnaði í fjórða sæti 2013, 2015.

Aron Pálmarsson er nú að taka þátt í úrslitahelginni í sjötta sinn, þar af í fyrsta sinn með ungverska meistaraliðinu Veszprém.  Hann var í sigurliði Kiel 2010 og 2012 og fékk silfrið 2014.

Guðjón Valur Sigurðsson vann Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn á ferlinum í fyrrra með Barcelona. Barcelona féll úr keppni að þessu sinni í 8-liða úrslitum eftir tap fyrir Kiel.

Ólafur Stefánsson vann Meistaradeild Evrópu 2002 með Magdeburg og 2006, 2008 og 2009 með Ciudad Real. Auk þess var Ólafur í liði Rhein-Neckar Löwen sem hafnaði í fjórða sæti 2011 og bronsliði AG Köbenhavn 2012 ásamt m.a. Arnóri Atlasyni, Guðjóni Val Sigurðssyni og Snorra Steini Guðjónssyni.

Guðjón Valur og Róbert Gunnarsson voru m.a. með Ólafi í liði Rhein-Neckar Löwen vorið 2011 undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar. Liðið tapaði fyrir HSV Hamburg, 33:31, í leiknum um þriðja sætið.

Alfreð Gíslason þjálfaði Magdeburg þegar liðið vann Meistaradeildina 2002. Hann stýrði Kiel til sigurs í keppninni 2010 og 2012.

Aron Pálmarsson vann Meistaradeild Evrópu 2010 og 2012 sem leikmaður Kiel.

Ólafur Gústafsson var í sigurliði Flensburg sem vann Meistaradeildina 2014.

Aðrir íslenskir þjálfarar en Alfreð Gíslason sem hafa komist í úrslitahelgina eru Guðmundur Þórður Guðmundsson 2011 með Rhein-Neckar Löwen og Dagur Sigurðsson með Füchse Berlín árið eftir. Báðir höfnuðu í fjórða sæti.

Guðjón Valur Sigurðsson var  fyrsti handknattleiksmaðurinn i sögunni til þess að taka þátt í úrslitahelginni með fjórum félagsliðum. Guðjón Valur var með Rhein-Neckar Löwen 2011, AG Köbenhavn 2012, Kiel 2013 og 2014 og Barcelona í fyrra.

Engu liði hefur tekist að vinna Meistaradeildina tvö ár í röð eftir að núverandi keppnisfyrirkomulag var tekið upp.

Aðeins einn þjálfari hefur unnið Meistaradeild Evrópu með tveimur félagsliðum, það er Alfreð Gíslason.

Talant Dusebaev, þjálfari Vive Kielce, er eini þjálfarinn af þeim fjórum sem standa í eldlínunni um helgina sem hefur unnið keppnina bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann var í sigurliði Santander frá Spáni 1994 og stýrði Ciudad Real til sigurs í keppninni 2006, 2008 og 2009 sem þjálfari.

Nikola Karabatic getur orðið fyrsti leikmaðurinn til þess að vinna Meistaradeild Evrópu tvö ár í röð eftir að núverandi keppnisfyrirkomulag var tekið upp vorið 2010. Karabatic, sem nú leikur með PSG, var Evrópumeistari með Barcelona fyrir ári.

Thierry Omeyer, markvörður PSG, er eini þátttakandi úrslitahelgarinnar sem hefur unnið Meistaradeildina fjórum sinnum. Hann var í sigurliði Montpellier 2003 og með Kiel 2007, 2010 og 2012.

Javier Sabate, þjálfari Veszprém, er sá eini af þjálfurunum fjórum sem hefur aldrei tekið þátt í úrslitahelgi Meistaradeildarinnar sem aðalþjálfari. Hann tók við þjálfun Veszprém í vetur eftir að Carlos Ortega var sagt upp störfum. Sabate var áður aðstoðarmaður Ortega. Í raun er Veszprém fyrsta liðið sem Spánverjinn Sabate stýrir sem aðalþjálfari. Hann er samningsbundinn ungverska meistaraliðinu fram á mitt næsta ár.

Leikið verður  í Lanxess-Arena í Köln sem tekur 19.750 áhorfendur í sæti. Síðustu miðarnir á úrslitahelgina seldust í lok síðasts árs en Handknattleikssamband Evrópu setti miðana út í skömmtum til sölu frá júní í fyrra fram í nóvember. Að vísu voru teknir frá 2000 miðar sem skipt var jafnt niður á liðin fjögur sem komust í undanúrslit. Þeir miðar fóru í sölu fyrir skömmu og seldust eins og heitar lummur.

Miðasala á úrslitahelgina að ári hefst í dag. Í fyrra seldust um hátt í 7.000 aðgöngumiðar ári fyrirfram og ljóst að margir sem til Kölnar koma mæta ár eftir ár.

Áhugi fyrir leikjum keppninnar hefur einnig vaxið ár frá ári með þeirra sem reka sjónvarpsstöðvar en að þessu sinni eru leikir úrslitahelgarinnar sendir út til 120 landa og hafa aldrei verið fleiri.

Barcelona hefur átta sinnum unnið Meistaradeild Evrópu, 1996–2000, 2005, 2011 og 2015. Kiel hefur unnið þrisvar 2007, 2010, 2012. Veszprém og PSG hafa aldrei unnið Meistaradeild Evrópu.

Veszprém hafnaði í fjórða sæti fyrir tveimur árum og varð í öðru sæti fyrir ári og 2002.

Róbert Gunnarsson og félagar í franska meistaraliðinu PSG taka nú í fyrsta sinn þátt í undanúrslitahelgi Meistaradeildarinnar.

Pólska meistaraliðið hefur tvisvar tekið áður tekur þátt í úrslitakeppninni, 2013 og 2015. Í bæði skiptin hefur liðið hafnað í þriðja sæti eftir að hafa lagt Kiel. Árið 2013 var Þórir Ólafsson einn leikmanna liðsins Kielce.

Talið er að ekki færri en 200 Íslendingar verði á meðal áhorfenda á leikjum úrslitahelgarinnar að þessu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert