Júlíus áfram á Nesinu

Júlíus Þórir Stefánsson í leik með Gróttu.
Júlíus Þórir Stefánsson í leik með Gróttu. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Handknattleiksmaðurinn Júlíus Þórir Stefánsson hefur framlengt samning sinn við Gróttu til tveggja ára en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Á nýliðnu keppnistímabili var Júlíus ein styrkasta stoðin í jöfnu Gróttuliði og fyrir úrslitakeppnina var hann valinn í lið ársins af þjálfunum deildarinnar. Júlíus var einn af markahæstu leikmönnum liðsins, skoraði 82 mörk í 26 leikjum í deildinni, og jafnframt mikillvægur hlekkur í góðri vörn liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert