Arna Kristín komin á Selfoss

Arna Kristín Einarsdóttir ásamt Magnúsi Matthíassyni formanni handknattleiksdeildar Selfoss
Arna Kristín Einarsdóttir ásamt Magnúsi Matthíassyni formanni handknattleiksdeildar Selfoss Ljósmynd/Selfoss

Arna Kristín Einarsdóttir hefur skrifað undir eins árs samning við handknattleiksdeild Selfoss. Hún kemur til liðs við Selfoss frá KA/Þór þar sem hún hefur spilað síðustu ár.

Arna Kristín, sem er tvítug, hóf handboltaferil sinn hjá ÍR en hefur spilað fyrir KA/Þór frá 10 ára aldri. Hún spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik haustið 2014.

Arna Kristín er öflugur hornamaður sem skoraði 119 mörk í 25 leikjum á síðasta tímabili. Hún hefur verið kölluð til æfinga með yngri landsliðum Íslands á undanförnum árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert