Veszprém rótburstaði Balmazujvaros

Aron Pálmarsson
Aron Pálmarsson mbl.is/Golli

Stórliðið Veszprém sýndi enga miskunn gegn Balmazujvaros í ungverska handboltanum í dag og vann yfirburðasigur. 

Veszprém sigraði 40:17 á heimavelli en Aron Pálmarsson var ekki í leikmannahópi liðsins að þessu sinni. Raunar voru Serbinn Momir Ilic og Ungverjinn László Nagy ekki heldur með. 

Veszprém hefur nú þegar spilað fimm leiki í ungversku A-deildinni og unnið þá alla. Fyrsta umferð deildarinnar hefur þó enn ekki verið leikin og eru Aron og félagar því eina liðið sem hefur spilað meira en einn leik og átta lið hafa enn ekki hafið keppni. Stigataflan segir því að Veszprém sé með 10 stig en hin þrettán liðin í deildinni eru án stiga!

Þetta er vegna þess að Veszprém spilar fyrst og fremst í Austur-Evrópudeildinni frameftir vetri en leikur leiki sína heima fyrir í svona törnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert