Sex leikja sigurhrina

Aron Rafn Eðvarðsson.
Aron Rafn Eðvarðsson. Árni Sæberg

Aron Rafn Eðvarðsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, var í sigurliði í dag er BBM Bietigheim sigraði HG Saarlouis 32:28 í þýsku 2. deildinni í dag. Bietigheim hefur unnið fyrstu sex leiki tímabilsins.

Aron framlengdi samning sinn við Bietigheim í sumar en hann gerði þá tveggja ára samning við félagið.

Liðið hefur nú unnið fyrstu sex leiki deildarinnar en liðið bar sigur úr býtum gegn Saarlouis í dag, 32:28. Leikurinn var allan timann í höndum Bietigheim en staðan var 15:12 í hálfleik.

Bietigheim er eins og áður segir með fullt hús stiga eftir fyrstu sex umferðir mótsins en Saarlouis er í tólfta sætinu.

Oddur Gretarsson gerði þá eitt mark er lið hans Emsdetten tapaði 29:28 fyrir Ferndorf.

Emsdetten er í átjánda sæti deildarinnar með þrjú stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert