Þægilegur sigur hjá Aroni

Aron Pálmarsson í leik með Veszprém.
Aron Pálmarsson í leik með Veszprém. © Melczer Zsolt

Aron Pálmarsson og félagar hans í ungverska stórliðinu Veszprém sigruðu Kadetten Schaffhausen 32:28 í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í dag.

Svissneska liðið náði að halda vel í við Veszprém í fyrri hálfleik en staðan var 16:15 fyrir ungverska liðinu þegar flautað var til hálfleiks.

Veszprém hafði sigur á endanum 32:28 en Aron Pálmarsson gerði þrjú mörk.

Þetta var fyrsti sigur liðsins í riðlinum en það gerði jafntefli í fyrsta leik gegn Flensborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert