Vignir með tvö mörk í Portúgal

Vignir Svavarsson var með tvö mörk í Portúgal í dag.
Vignir Svavarsson var með tvö mörk í Portúgal í dag. Adam Jastrzebowski / Foto Olimpik,Ljósmynd/Foto Olimpik

Team Tvis Holstebro tapaði 32:27 fyrir Braga frá Portúgal í D-riðli Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í dag. Vignir Svavarsson gerði tvö mörk fyrir danska liðið.

Holstebro varð danskur meistari á síðasta tímabili og tryggði sér þar með þátttökurétt í Meistaradeildinni á þessari leiktíð en liðið fer brösulega af stað.

Liðið gerði jafntefli í fyrsta leiknum sínum og tapaði svo á útivelli í Braga í Portúgal í dag en liðið var 16:14 undir í hálfleik. Leiknum lauk svo með 32:27 sigri Braga.

Vignir Svavarsson gerði tvö mörk fyrir Holstebro en Egill Magnússon komst ekki á blað.

Holstebro er í næst neðsta sæti deildarinnar með eitt stig eftir tvo leiki en Braga er í þriðja sæti með tvö stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert